Samskip styrkir lyftaraflotann með Jungheinrich
10.01.2014
Kristján Högnason forstöðumaður Vöruhúsadeildar veitti formlega viðtöku á sex nýjum Jungheinrich lyfturum. Þetta eru tveir EKS110 týnslulyftarar, tveir ERD220 staflarar og tveir ETV318 hillulyftarar sem fara allir til notkunar í Vörumiðstöð Samskipa við Kjalarvog í Reykjavík. Óhætt er að segja að það hafi ríkt almenn ánægja með nýju lyftarana hjá starfmönnum vörumiðstöðvarinnar.