Vélamiðstöðin bætir flotann
11.01.2016
Vélamiðstöðin tók við á dögunum nýrri CASE 590ST traktorsgröfu. Þeir Lingþór Jósepsson framkvæmdastjóri, Heiðar Ragnarsson verkstjóri og Tomasz Miastkowski tækjastjóri voru harla kátir á afhendingardegi. Við óskum Vélamiðstöðinni kærlega til hamingju með nýju traktorsgröfuna .